Það er mjög einfalt að tengja Google reikninginn sinn (Gmail og Calendar) við Manor. Ef það er gert þá opnast möguleikar á því að fá tillögur að tímaskráningum í takt við senda og móttekna tölvupósta. Þá er einnig hægt að láta atburði í Manor streyma yfir í dagatalið í Google. Það er alltaf hægt að rjúfa þessa tengingu síðar og eyða gögnum, ef vill.


Til þess að tengja Google við Manor þá ferðu í nafnið þitt efst í Manor. Velur svo Tengingar í valmyndinni til vinstri.



Þar sérðu Google í listanum yfir mögulegar tengingar. Smellir þar á Tengjast.




Þá hefst ferli þar sem þú gefur Manor réttindi til þess að sækja gögn og senda gögn í Google reikninginn þinn. Þegar því ferli er lokið þá kemur þú aftur í Manor og getur nú stillt hvernig þú vilt hafa tengingunni.



Fyrst velur þú hvaða Google reikning þú ætlar að tengja. Næsta skref á eftir því er að staðfesta að Manor sé heimilt að sækja gögnin. Athugið að Manor er ekki verified app hjá Google og því þarf að Smella á Advanced og svo Go to manor.is


Þá kemur næsta skref. Þar þarftu að haka við þau atriði sem þú vilt heimila Manor að nýta. Til þess að geta nýtt dagatalstengingu og tölvupósttengingu þá þarftu að haka við 


View and edit events on all your calendars.

  • Þetta þarf svo að Manor geti sótt og skráð atburði í Google dagatalið þitt.


See and download any calendar you can acccess using Google calendar.

  • Þetta þarf svo að Manor geti leyft þér að velja hvaða dagatal er notað fyrir Manor atburði.


View your email message metadata such as labels and headers, but not the email body.

  • Þetta þarf svo hægt sé að nýta tölvuóstsamskipti til þess að útbúa tillögur að tímaskráningum.



Þá er ferlinu lokið og þú ferð aftur yfir í Manor og sérð þessa mynd.




Hér geturðu stillt eftirfarandi:


Virkja Google Calendar tengingu

  • Hér ákveður þú hvort þú viljir að Manor sæki og skrái atburði í Google Calendar hjá þér. ATburðir birtast þá á báðum stöðum, í Manor atburðadagatali og í Google Calendar. Þú getur áfram notað Google Calendar eins og þú gerðir áður, tengingin hefur engin áhrif á hefðbundna notkun eða aðrar stillingar.


Tengd dagatöl

  • Hér velurðu hvaða dagatal þú vilt að Manor sæki atburði í og birti í Manor. Oftast er það sama dagatal og þú velur í næsta reit, sem heitir Manor dagatal.


Manor dagatal

  • Hér velurðu hvaða dagatal þú vilt að Manor skráir atburði í sem þú skráir í Manor. Sumir eru með sér dagatal fyrir vinnutengda atburði en arðri með eitt fyrir vinnu og frítíma.


Virkja Gmail tengingu

  • Hér stýrir þú því hvort pósttengingin sé virk. Ef hún er virk þá fylgist Manor með póstum sem þú ert með í vinnslu (drafts), póstum sem þú tókst á móti (recieved) og póstum sem þú hefur sent (sent). Þær upplýsingar notar Manor svo til þess að útbúa tillögur að tímaskráningum.


Hvaða gögn eru sótt frá Google?

Manor er með lifandi tengingu við Google og sækir og sendir upplýsingar eins og þarf til þess að nýjustu upplýsingar séu alltaf til staðar á báðum stöðum. Þau gögn sem sótt eru eru þessi:


Dagatal

Manor sækir/sendir aðeins gögn í ákveðið dagatal sem þú stillir í stillingum Manor megin.

  • Nafn allra atburða í einu ákveðnu dagatali.
  • Tímasestningar allra atburða í einu ákveðnu dagatali.


Tölvupóstur

Manor sækir aðeins gögn um tölvupóstsendingar ef kveikt er á þeim möguleika í Manor.

  • Nafn og netfang viðtakanda ásamt fyrirsögn (e. subject) bréfa sem eru í vinnslu, búið að senda eða búið að taka á móti.
  • Nafn og netfang sendanda ásamt fyrirsögn (e. subject) bréfa sem eru í vinnslu, búið að senda eða búið að taka á móti. 
  • Meginmál bréfa (e. email body) er ekki sótt.


Hvað er gert við gögnin í Manor?

Gögn úr dagatali eru sett inn í dagatalið þitt í Manor. Atburðir eru notaðir til þess að leggja til tímaskráningar.


Gögn úr tölvuósti eru eingöngu notuð til þess að leggja til tímaskráningar í takt við tölvuóstsamskipti.


Athugið að ólesinn póstur veldur ekki tillögum að tímaskráningum.


Hver getur séð póstinn minn?

Aðeins þú getur séð þær tillögur að tímaskránignum sem unnar eru upp úr upplýsingum um send/fengin bréf í tölvupóstinum þínum. Engir aðrir notendur hafa aðgang að þessum gögnum og stjórnendur og/eða kerfisstjórar hjá þínu fyrirtæki geta ekki séð þínar tillögur að tímaskráningum.


Hvað gerist ef ég aftengi Google frá Manor?

Ef þú vilt aftengja Google frá Manor þá ferðu í nafnið þitt, velur Tengingar og smellir á Breyta við Google tenginguna. Þar sérðu hnappinn Aftengjast og smellir á hann. 



Þá birtast tveir möguleikar. 

  • Aftengjast
    Þá er tengingin við Google rofin og engin frekari gögn verða sótt. Öll gögn sem þegar höfðu verið sótt verða áfram í Manor svo sem atburðir út dagatali og upplýsingar um aðila að tölvupóstum.

  • Aftengjast og eyða viðburðum.
    Þá er tengingin við Google rofin og engin frekari gögn verða sótt. Öllum gögnum sem þegar höfðu verið sótt verður einnig eytt. Það þýðir að allir atburðir sem Manor sótti til Google og eru í dagatalinu þínu í Manor verður eytt úr Manor. Engu verður eytt hjá Google og atburðir þínir verða áfram þar.


Gastu ekki tengst?

Manor tengist við Google í gegnum API þjónustu Google og getur með þeim hætti sótt gögn í alla hefðbundna Google reikninga. Ef þú ert hins vegar að nota t.d. Google gmail til þess að tengjast við aðra þjónustu, svo sem gamlan IMAP póstreikning hjá símafyrirtækinu þínu - þá má búast við hnökrum við notkun á tenigngunni. Við mælum sterklega með því að nota aðeins staðlaða Gmail reikninga.