Þegar búið er að skrá innborgun og svo ráðstafa innborgun er komið að því að skila innborgun. Það þýðir að færa kröfuhafanum þann hluta innborgunarinnar sem hann á að fá samkvæmt ráðstöfun hennar, sem oftst er sá hluti sem fór á vexti og höfuðstól. Ef innheimtan er sjálfvirk með bankatengingu þá gerist þetta af sjálfu sér. Ef hins vegar skuldari greiddi inn á vörslureikning innheimtuaðila þá þarf að klára þessi skref handvirkt.


Farið er í kröfuna sem um ræðir og í svæðið "innborganir" sem er neðst til vinstri í kröfunni.


save image


Þar má finna tengil sem heitir "bókhald". Þegar smellt er á hann kemur upp blað fyrir yfirlit um þessa innborgun fyrir bókhald innheimtuaðilans.


save image


Efst til hægri hér er hnappurinn "Skila" og skal ekki smella á hann fyrr en sannanlega er búið að millifæra peningana til kröfuhafans. Auðvitað getur innheimtuaðili smellt hvenær sem er á hnappinn en góðir starfshættir eru þeir að gera það ekki fyrr en búið er að skila.