Það er auðvelt að gefa út reikninga í erlendri mynt í Manor. Áður en það er gert er ágætt að huga að nokkrum atriðum.


Númer viðskiptavinar þarf að vera rétt skráð

Bókhaldskerfi skrá viðskiptavini nær alltaf með kennitölu og nota hana til þess að gefa út sölureikninga. Þegar viðskiptavinur er erlendur er notast við númer sem eru í raun ekki kennitölur en genga sama hlutverki. Bókhaldskerfin nálgast þetta misjafnt.

  • DK: Hvaða númer sem er svo sem: 0001. eða 99001.
  • Regla: Númer í sömu lengd og kennitala og verður að hefjast á 99. Til dæmis: 990000-0001


Svo lengi sem kennitala (eða númer) er það sama í Manor og bókhaldskerfinu þá mun það virka vel að gefa út reikninga á viðkomandi.


Til þess að athuga númer viðskiptavinar er farið í Viðskiptavinir -> Viðskiptavinur X -> Smellt á hnappinn Breyta viðskiptavini. Þá birtist þetta viðmót.


ATH: Viðvörun um ógilda kennitölu og að hún standist ekki vartölupróf er eðlileg. Þú getur samt sem áður vistað númer sem hentar.


save image


Gjaldmiðill þarf að vera rétt skráður

Aðeins er hægt að velja eina mynt fyrir viðskiptavin í Manor. Öll hans mál eru þá í þeirri mynt og útgáfa reikninga á hann fer fram í þeirri mynt. Mynt er valin þegar viðskiptavinur er stofnaður en ef þú vilt breyta mynt þá er það lítið mál. Þú ferð í "Viðskiptavinir" og velur viðskiptavininn. Þar er smellt á hnappinn "Breyta viðskiptavini" og þá birtist viðmót þar sem hægt er að velja mynt.


save image


Kjör þurfa að vera rétt skráð

Að skrá kjör á viðskiptavin eða mál er eins hver sem myntin er á viðskiptavininum. Hér eru leiðbeiningar um að skrá kjör.



Tungumál þarf að vera rétt

Hægt er að velja tungumál á mál í Manor. Það þýðir að ýmislegt sem kemur frá Manor í málinu er á ensku, svo sem vinnuskýrslur og reikningar. Tungumál er valið í stillingum máls. Þá er farið í mál og þar smellt á hnappinn "Breyta máli".


save image



Það segir sig sjálft en kemur oft á óvart að lýsingar á tímafærslum verða að vera á ensku ef vinnuskýrslan á öll að vera á ensku. Manor breytir aðeins umgjörð skýrslunnar yfir á ensku.


Útgáfa reiknings

Sjálf útgáfa reikningsins er eins og útgáfa allra annarra reikninga óháð gjaldmiðli.