Manor tengist beint við dómasafn Landsréttar. Allir nýir dómar birtast því samstundis í Manor og þeir eru birtir á vef viðkomandi Landsréttar.
Að bæta landsréttardómi við mál í Manor er mjög einfalt. Þá er einfaldlega farið í Rannsóknir og slegið inn leitarorð. Þá koma upp niðurstöður úr öllu rannsóknarsafninu. Hér má sjá niðurstöðu dóms í máli E-1695/2015, sem reyndar er héraðsdómur en tekið sem dæmi hér að neðan.
Því næst er smellt á dóminn. Þá kemur hann upp í sér glugga, þar má velja mál og smella á Afrita í mál. Þá verður til afrit af dómnum við það mál.
Þegar búið er að afrita dóminn er hægt að lita texta gulann sem geymist þá með dómnum við málið svo einfalt sé að sjá síðar hvað sé athyglisvert í dómnum.
Þegar farið er í málið sjálft má sjá þær rannsóknir sem búið er að skrá á málið í kassa í hægri dálki.
Eldri dómar
Allir dómar réttarins frá 2017 til dagsins í dag eru í rannsóknasafni Manor.