Eitt af því sem gott er að gera fljótlega er að setja upp verðskrá fyrirtækisins. Þú ferð í Kerfisstjórn og svo Taxtar.



Þá ertu komin á yfirlit allra taxta. Hér er hægt að skrá nýjan taxta, breyta eldri töxtum o.fl.




Velja taxtaskipulag


Fyrst þarftu að ákveða hvernig skipulagið á að vera í fyrirtækinu. Þá er smellt á tannhjólið á taxtasíðunni. Þá kemur upp gluggi sem gefur þér kost á að velja hvort nota taxa fyrir hvern starfsmann.


  • Já, taxti fyrir hvern starfsmann Ef þú velur að nota einn taxta fyrir hvern starfsmann þá verður til taxta með nafni notandans í hvert sinn sem notandi er stofnaður. Núverandi notendur fá einnig taxta með sínu nafni. Þetta þýðir að í hvert sinn sem notandinn skráir tímafærslu er einfaldlega notaður taxtinn hans (taxti með hans nafni) og hann þarf aldrei að velja taxta þegar hann skráir tíma. Hér er líka hægt að stilla verð niður á starfsmann hjá ólíkum viðskiptavinum og niður á ólík mál.

    Dæmi: Jón Jónsson á að kosta 23.000 kr í máli A en 19.900 í máli B. Hann skráir þá sérkjör á þau mál en skráir alla sína tíma bara með taxtanum Jón Jónsson og þarf aldrei að hugsa þegar hann skráir.

  • Nei, ekki taxti fyrir hvern starfsmann: Ef þú velur að nota ekki einn taxta per starfsmann þá Þá er það í þínum höndum að stofna þá taxta sem á að nota. Þeir sem vilja nota hlutverkataxta á borð við eigandi, fulltrúi, laganemi, o.fl. velja oft þennan kostinn. Þá getur starfsmaður sem skáir tíma hvort hann sé að gera það sem eigandi, fulltrúi, laganemi, osfrv. Þessi nálgun er oft kölluð hlutverkanálgun á taxta.

    Dæmi: Jón Jónsson vinnur í einu máli í hlutverk eiganda en í öðru máli er hann í hlutverk fulltrúa. Ólík verð gilda. Jón þarf hér að passa sig að velja réttan taxta þegar hann skráir.



Þegar búið er að velja taxtaskipulag er smellt á Vista. 


Vörunúmerin í glugganum eru fyrir sölureikningagerð og koma úr bókhaldskerfi. Meira um skráningu vörunúmera hér.


Skráning taxta

Ef þú valdir Já, taxti fyrir hvern starfsmann, þá þarftu ekki að skrá taxta fyrir starfsmennina. Manor sér um það en þú getur vitaskuld breytt taxta hvers notanda hvenær sem er. Ef þú valdir Nei þá þaftu nú að stofna þá taxta sem þú ætlar að nota fyrir vinnu.


Manor styður þrjár tegundir af töxtum:


  1. Vinna er tegund taxta sem gildir um skráðar vinnustundir. Þegar þú skráir tíma á mál getur þú valið einhvern af þeim töxtum sem eru skráðir hér og þeir eru þá notaðir sem tímagjald. Verð tímafærslunnar er þá margfeldi taxtans og tímafjölda.

  2. Akstur er tegund taxta sem gildir um skráðan akstur. Þegar þú skráir akstur á mál getur þú valið einhvern af töxtum sem eru skráðir hér og þeir eru þá notaður sem kílómetragjald. Verð á ferðinni eru þá margfeldi taxtans og kílómetrana sem eknir voru.

  3. Söluvara er tegund taxta sem gildir um atriði sem þú vilt selja í stykkjatali. Þetta gætu verið t.d. "samþykktir félags" sem þú vilt rukka fast verð fyrir óháð tíma sem fór í gerð þeirra. Í þeim tilvikum skráir þú bara 1 stk af vörunni á málið.

Hvað er söluvara?

Margar stofur eru farnar að selja vörur sínar í formi stykkja eða pakka. Þetta á sérstaklega við þegar um staðlaða hluti er að ræða svo sem nýskráningu félags eða gerð samþykkta svo eitthvað sé nefnt. Verð á hlutnum er þá tilgreint hér og svo er vara skráð á málið í stykkjatali.



Sérstakt verð fyrir ákveðinn viðskiptavin

Það er einfalt að stilla verð fyrir ákveðinn viðskiptavin sem gildir þá í staðinn fyrir almenna verðskrá. Þau verð gilda þá um öll mál viðskiptavinarins nema búið sé að skilgreina sérstök verð í þeim málum.




Sérstakt verð fyrir ákveðin mál

Það er einfalt að stilla sérstök verð fyrir ákveðin mál. Þá gilda þau verð í staðinn fyrir kjör viðskiptavinarins og í staðinn fyrir almenna verðskrá.

Verð í öðrum gjaldmiðlum

Það er mjög einfalt að skrá verð í öðrum gjaldmiðlum. þú smellir einfaldlega á Verð í erlendum gjaldmiðlum og þar getur þú tilgreint verð á töxtum í erlendum myntum.



Þegar þangað er komið getur þú séð hvað taxtarnir þýða í erlendum gjaldmiðlum miðað við að þeir séu umreiknaðir á gengi dagsins. Þú getur einnig ákveðið að tiltekinn taxti eigi að kosta fasta tölu í erlendri mynt. Þá smellirðu á Breyta hnappinn.



Þar getur þú smellt á þann reit sem þú vilt breyta. Hér má sjá hvernig vinna Guðrúna Pétursdóttur átti að kosta 156 pund umreiknað á gengi dagsins en þess í stað vill notandinn að verð sé 250 pund. Það verð mun þá gilda hjá öllum viðskiptavinum sem skráður eru með breskt pund sem gjaldmiðil og í málum þeirra. Það er svo alltaf hægt að stilla verðin hjá þeim viðskiptavini og í málum sérstaklega ef vill.



Þegar búið er að skrá verðin inn er einfaldlega smellt á Vista.


Yfirlit yfir öll verð

Það er einfalt að sjá yfirlit yfir öll verð á stofunni og átta sig á því hvar sérverð eru gildandi. Þá er smellt á hnappinn Verð í erlendum gjaldmiðlum.