Nú er komið að því að skrá fyrsta tímann! Ferlið gæti ekki verið einfaldara. Efst til hægri í Manor eru hnappar ti þess að skrá nýja hluti á mál svo sem tíma, vörur, akstur og kostnað. Þessi hnappur er sýnilegur hvar sem er í kerfinu og því afar fljótlegt að skrá tíma með því að smella á hann hvar sem þú ert í Manor.
- Smellið á skrá tíma hnapp efst til hægri.
- Veljið skrá tíma.
Þá kemur upp viðmót til þess að skrá tíma.
Til hægri í viðmótinu má sjá þann dag sem valinn er og þar má teikna tímafærsluna.
Tímafærsla er teiknuð með því að smella einhvers staðar innan dagsins, draga niður og sleppa.
- Nauðsynlegt er að fylla út í reiti merkta með rauðri stjörnu.
- Nafn máls
- Dagsetningu
- Upphafs og lokatíma (kemur sjálfvirkt ef teiknað er)
- Taxti
- Hægt er að fjölga eða fækka rukkuðum tímum með því að breyta "lengd til greiðslu".
- Texti í vinnuskýrslu er frjáls og koma tillögur upp ef þú hefur skráð tíma á málið áður.
- Mögulegt er að skrá innri athugasemd með því að smella á "+ Innri athugasemd" en hún er aðeins sýnileg aðilum málsins og kemur ekki á vinnuskýrslu.
- Greiðandi er sá sami og viðskiptavinur nema annað sé valið í reitnum Greiðandi.
- Hægt er að sjá árangur sinn í tímaskráningum með því að haka við "Sjá árangur í tímaskránignum" neðst í skráningarglugganum.
Þegar allt er klárt er smellt á hnappinn [Vista].
Athugið að einnig er hægt að skrá tíma með grafískum hætti.