Til þess að móta Manor betur að fjölbreyttum tegundum mála eða verka er hægt að útbúa sniðmát sem bæta við sérsniðnum reitum og öðrum eigineikum. Þá er hægt að flokka málin eða verkin eftir þessum reitum, skipuleggja vinnu betur, raða málum sérstaklega eftir þessum reitum o.fl.


Að búa til sniðmát

Með því að fara í Kerfisstjórn og velja þar Málasniðmát er hægt að búa til nýtt sniðmát. Hægt er að velja nafn á sniðmátið, bæta við eins mörgum reitum og hentar, velja tegund reita og sagja til um hvort þeir séu nauðsynlegir við skráningu máls eða verks. Þegar búið er að útbúa sniðmát þá má velja það þegar nýtt mál eða verk er stofnað.





Að stofna mál eða verk með sniðmátinu

Þegar búið er að útbúa sniðmát má stofna mál eða verk með sniðmátinu með því að smella á hnappinn Stofna efst til hægri í Manor og velja svo viðeigandi sniðmát við stofnun málsins eða verksins. Um leið og sniðmátið er valið birtist svæði þar sem reitir sniðmátsins eru sýnilegir og hægt að skrá í þá gögn.




Að skoða mál eða verk í sniðmáti

Þegar búið er stofna mál eða verk í tilteknu sniðmáti má alltaf breyta gögnum í þeim reitum sem tilheyra sniðmátinutinu. Þá er farið í viðkomandi mál og smellt á Breyta í því svæði sem tilheyrir sniðmátinu.




Sérhannaður listi yfir mál eða verk í sniðmáti

Mál eða verk í sniðmátum má sjá í sérstökum lista þar sem hver reitur í sniðmátinu er í sér dálki. Þar má flokka málin eða verkin, leita sérstaklega í þeim, raða eftir dálkum o.s.frv.