Einfalt er að vinna með virðisaukaskatt við skráningu tekna og útgáfu reikninga í Manor.


Virðisaukaskattskylda

Við hvert mál í Manor má skrá hvort innheimta eigi virðisaukaskatt eða ekki. Það fer eftir ýmsu hvað eigi við í hverju máli. Nær öll fyrirtæki eru virðisaukaskattskyld en á því eru undanþágur auk þess sem fjöldi opinberra aðila er undanþeginn virðisaukaskatti. Miklu máli skiptir að þessi stilling sé rétt svo að reikningagerð o.fl. virki með réttum hætti.


Ákveðið við stofnun máls

Þegar nýtt mál er stofnað þarf að skilgreina hvort innheimta eigi VSK eða ekki.


save image


Skipt um skoðun

Alltaf er hægt að breyta VSK stillingum máls. Þá er farið í málið og smellt á [Breyta máli] í forsendu málsins.


save image


Virðisaukaskattsflokkar

Hægt er að skilgreina virðisaukaskattsflokka í Manor. Þeir flokkar eru notaðir þegar útlagður kostnaður er skráður á mál. Þessir flokkar eru aðgengilegir undir Kerfisstjórn og VSK flokkar.


save image